Loftslagsreiknivél MEPS er fyrsta kerfisþjónustan á Norðurlöndum sem reiknar sjálfkrafa út lofslagsáhrif viðgerða á fasteignum. Fyrirtæki geta nýtt niðurstöðurnar sem hluta af innra starfi að aukinni sjálfbærni.
Hvernig geta loftslagsgögn nýst?
– Á heildina litið geta loftslagsgögn aukið skilning okkar á lofstlagsáhrifum af viðgerðum á fasteignum. MEPS afhendir almenn gögn, sem má líta á sem verkfæri sem nýtist í innra stafi fyrirtækja að sjálfbærni. Þetta gerir notandanum kleift að taka upplýstar ákvarðanir í ýmsum rekstrartengdum málum.

Grunngögnin sem loftslagsútreikningarnir byggja á koma frá sænsku Umhverfisrannsóknastofnuninni (IVL). Í samráði við stofnunina hefur gagnavinnslusvið MEPS ákvarðað hvernig staðið skuli að loftslagsútreikningum. Gildi sem notuð eru við útreikninga loftslagsáhrifa í MEPS eru uppfærð daglega í samræmi við grunngögn IVL um loftslagsáhrif.

Hver eru loftslagsáhrif viðgerða?
– Loftslagsreiknivél MEPS sýnir útreikning koltvísýringsígilda í hverri verkbeiðni í MEPS, á grundvelli niðurstaðna útreikningsins. Hægt er að skoða koltvísýringsígildi fyrir mismunandi hluta verkefnisins: efnisþörf, orkunotkun, farþegaflutninga og flutninga á efni.